|
:: 14 nóvember, 2003 ::
Kominn heim
Eða kom réttara sagt heim á mánudag en hef ekkert nennt að skrifa. Var á samráðsfundi í Stokkhólmi þar sem saman var komið fólk af norðurlöndunum sem sér um fræðslu-og starfsmál í skátabandalögunum þar. Komst að því að ég hef haft rétt fyrir mér um danina...finnst þeir ekkert sérlega skemmtilegir, norsarar eru bara svona lala en svíar eru svo væmnir að ég hélt ég myndi deyja af því að tala við þá. Svo eru þeir líka svo hörundssárir. Finnar hins vegar eru mitt fólk held ég. Þetta var með eindæmum skemmtilegt fólk, enginn væmni vibbi í þeim.
Þannig ég er búinn að telja Báru á að það sé sniðugt að leita að framhaldsnámi í Finnlandi...en ég verð að skoða Svíþjóð líka. Það gæti nú verið hægt að finna e-ð skemmtilegt og gott nám þar líka.
:: Jón Grétar 14:31 [+] ::
...
|