|
:: 02 nóvember, 2006 ::
Íslenska fyrir neðan
Well now, here I am again. After visits from family and old and new friends there is a lot to say. But so as not to bore you all to death with details I shall just give you a little overview. More than three weeks ago my friend Tommi came to see me and stayed with me for 9 days and we had great fun, looking at the Green Isle and the capital Dublin. My friend Rökkvi and his cameraman Siggi came over that weekend also and Rökkvi conquered the Galway stand-up crowds here before going to Montreal to compete in a stand up competition there. Tommi came on a Wednesday and left on the Friday the following week while Rökkvi and Siggi could only stay for two nights from Saturday until Monday. Then I had one day of cleaning up and then my brother Posi came to see me and stayed for a whole week. We had a good time here in Galway, saw some traditional sessions, toured the countryside and went to Dublin where my bro bought a fancy suit for an extortionate amount of money. But they did look good! Posi also brought me a shipload of stuff. Icelandic candy, flatkökur, smoked meat, my Van Morrison cd's and Monty Python DVD's. And my parents also sent me a cool t-shirt with a huge Icelandic coat of arms so I can show off my Icelandicness. My mom also sent me two of her paintings that I am going to have framed and put on the wall in my new house. Sweet! After that was a week of working and catching up at the office and then Janina had her lovely friend Judith over. Again I had to be the host (poor ol' me), showing the German lass how the Irish people like their drinks.
Now I am back at the office, trying to catch up with three weeks of doing almost nothing. My first job? Call first year students and persuade them to come in and participate in my research. I love this job, anyone up to being my phone bee-atch for this particular assignment? No? Well, I guess I will have to put on my phone voice and start a recruiting!
Pictures soon, I just figured out how to put them here!
Jæja, þá er ég kominn aftur. Eftir heimsóknir frá fjölskyldu og gömlum og nýjum vinum er mikið að segja frá. En til þess að drepa ykkur ekki úr leiðindum ætla ég bara að stikla á stóru. Heimsóknarholskeflan byrjaði með heimsókn Tomma sem var hjá mér í 9 daga. Auðvitað gerði ég það sem manni ber að gera þegar gesti ber að garði, sýndi honum Eyjuna grænu, kíktum til Dublin og skoðuðum pöbbana hér í Galway. Þegar Tommi var búinn að vera hér í tvo daga kom Rökkvi með Sigga myndatökumann. Rökkvi var í heimsreisu með uppistandið sitt og hafði viðkomu í Galway, Montreal og London. Ég veit ekki hvernig Montreal og London tóku honum en Galway fannst hann helvíti fyndinn og vildu fá hann aftur. Hlakka til þess. Þegar Tommi fór var einn dagur til þess að taka til og þvo en þá kom Posi bróðir í heimsókn. Sá kom færandi hendi með flatbrauð, hangikjet, sælgæti, Van Morrison geisladiskana mína og Monty Python DVD. Frábært!! Mútta og pabbi sendu mér líka þennan forláta bol með íslenska skjaldarmerkinu og ég get núna básúnað það um allt að ég sé íslenskur og passa auðvitað að hafa stóra Þórshamarinn minn áberandi líka ;) Auk þess fékk ég tvö málverk sem mútta hafði málað. Þau eru á leið í innrömmun og verða uppá vegg í nýja húsinu. Við Posi kíktum líka til Dyflinnar þar sem hann keypti sér þessi líka forlátu jakkaföt, við kíktum á kastala hér í nágrenninu og fórum á þjóðlagakvöld í einum pöbbnum hérna. Frábært! Þegar Posi fór var vika í að vinna upp skóladótið sem fallið hafði aðeins niður í forgangsröðinni og svo kom önnur heimsókn. Það var Judith, sem er vinkona Janinu meðleigjanda míns. Það var stutt heimsókn og ég gat að mestu látið skoðunarferðir eiga sig en ekki er hægt að láta það eiga sig að sýna gestum næturlífið hér svo ég var með í þeim pakka :p
Núna er ég aftur kominn á skrifstofuna og er í þann mund að byrja að hringja í fyrsta árs nema til þess að plata þá til þess að taka þátt í rannsókninni minni. Ef einhver vill vera símatíkin mín og hringja fyrir mig þá er það guðvelkomið. Ef ekki, þá verð ég víst bara að gera það sjálfur.
Set inn myndir bráðlega, er búinn að fatta hvernig á að gera það hér.
:: Jón Grétar 10:50 [+] ::
...
|