|
:: 04 apríl, 2003 ::
Gifting
Þá erum við Bára loksins búin að ákveða hvernig við ætlum að hafa giftinguna okkar. Þetta er búið að vera mjög mikill höfuðverkur þar sem við erum hvorugt trúuð en viljum samt hafa athöfn af einhverju tagi til að halda upp á daginn. Dagurinn sem um ræðir er 19. júní 2004, leggið það á minnið vinir og vandamenn.
Við munum byrja daginn seint með því að borða á góðum veitingastað með okkar nánustu, foreldrar og systkini. Þaðan verður farið í veislusal þar sem við verðum gefin saman og giftingunni fagnað fram eftir öllu. Á borðum munu þá bara verða léttar veitingar og auðvitað smávegis til að skola þeim niður með líka :)
Ég mun örugglega segja meria frá þessu hérna þegar nær dregur, mér finnst voða gaman að tala um svonalagað.
Munið að taka daginn frá...19 júní 2004
:: Jón Grétar 19:10 [+] ::
...
|