:: The Materialistic Worldview ::

"Taking something to be so, taking it to be not so or not taking it to be either does not make it so, does not make it not so and does not make it neither" Fred Dretske
:: welcome to The Materialistic Worldview :: bloghome | contact ::
[::..archive..::]
[::..Friends..::]
:: My departmental website [>]
:: Bara [>]
:: Jon Ingvar [>]
:: Tyrone Hobbes [>]
:: Burla [>]
:: Reynir and family [>]
:: Fríður Finna [>]
:: Svavar Knutur [>]
:: Asgeir Olafs [>]
[::..Whiskey..::]
:: Royal Mile Whiskies [>]
:: Ian Macleod Distillery [>]
:: Master of Malt [>]
:: Whisky Heritage Museum [>]
:: Connemara Whiskey [>]
:: Jack Daniels [>]
[::..Fun stuff..::]
:: Maddox Genius no1 [>]
:: Michael Kelly Genius no2 [>]
:: Kissonline [>]
:: Kissasylum [>]
:: Garfield [>]
:: Bitter Films [>]
:: [::..Philosophy and politics..::]
:: Murinn [>]
:: Kreml [>]
:: Arts and letters daily [>]
:: New York Review of Books [>]
:: Noam Chomsky [>]
:: Eric Lormand [>]
[::..Schools and work..::]
:: Galway psychology department [>]
:: Cambridge centre for behavioral studies [>]
:: B.F. Skinner foundation [>]
:: ]

:: 26 júní, 2003 ::

Stundin nálgast...

Loksins loksins LOKSINS er ég að flytja af stúdentagörðunum!! Ég er LOKSINS að losna við fíflin á neðri hæðinni, geðsjúka fólkið sem fer í kubbaleik á hverjum morgni á efri hæðinni, afríkumenn með bongó og kongó trommur, krakkagemlingana á leikskólanum og flugvélarnar sem vekja mig á hverjum morgni.
Allar bækurnar mínar eru ofan í kassa (þess vegna bætti ég ekki við nýju erindi úr Hávamálum hér að ofan) og flestir geisladiskarnir mínir, allt smádrasl í stofunni og líka í svefnherberginu. Núna er bara að fá á hreint hvenær við getum farið út og inn í Ljósheimana (voðalega er þetta symbólískt nafn, það mætti halda að ég væri í bókmenntafræði!). Hinir ljósu heimar fegurðar og friðsældar, án angurs og leiðinda...og nettengingar reyndar líka, en ég verð að lifa við það.

:: Jón Grétar 22:58 [+] ::
...
:: 24 júní, 2003 ::
þreeeeyttur...

Núna er klukkan að verða fimm um morgun og ég búinn að vera í vinnunni í 20 tíma! Þetta þýða 12 tímar í yfirvinnu og ég er ekki á leið heim strax. Held að Bára sé ekki glöð yfir því að þurfa að kúra ein...og ekki ég heldur :(
Kannski ég skreppi heim um 6 leitið og leggi mig í 2-3 tíma áður en ég fer aftur í vinnuna...það held ég að gæti verið góð hugmynd. Annars er ég orðinn það þreyttur að ég er farinn að svitna köldum svita, farinn að heyra undarleg hljóð (kannski er það bara tölvukarlinn að pirra sig á kerfinu) og sjá stjörnur. Það gæti farið að verða gáfulegt að koma sér heim.

Best að halda áfram....

:: Jón Grétar 04:58 [+] ::
...
:: 16 júní, 2003 ::
Klukkan er 17, nú verða sagðar fréttir....

Í fréttum er þetta helst:
Ég hef ekki verið mikið að blogga undanfarið eins og skarpar sálir sjá. Allt hefur verið frekar undarlegt eftir að afi dó, allt á haus og mikið sem þarf að gera og þá hef ég ekki verið í miklum fílíng til þess að blogga og tjást um nokkurn hlut.

Svo hef ég verið að vinna á fullu, var með heila 70 yfirvinnutíma síðastliðið tímabil (sem er 30 dagar). Þetta þýðir allavega fullt af penge handa JG og hans ektafru þegar mánaðarmótin koma :)

Ég er síðan að fara að útskrifast um jólin jafnhliða því að stunda nám í kerfiskarlafræðum, það er, diplómanámi í opinberri stjórnsýslu. Nennti ekki að vera gera ekkert næsta vetur nema vinna. „Mar verðura læra smá skiluru. Bara halda sér í formi." Svo gæti verið meiri séns á að komast inn í framhaldsnám ef ég er með BA og diplóma líka. Það er voðalega fínt. Annars gekk mér líka svona helvíti vel í prófunum. 7 í skynjun, 8,5 í þroskanum og 9 í sérefninu. Kallinn bara að massidda!!

Ég verð að heiman á hálffimmtugsafmælinu mínu. Tók þá ákvörðun vegna þess að mig langar í útilegu, langar að skoða fornleifauppgröftinn á Klaustri og við Bára vorum búin að lofa Söndru að koma og heimsækja hana í teskeiðsgröfnu holuna hennar á klaustri. Ég bíð bara í kaffi seinna...nema strákarnir, þeir fá bjór ;) En þar sem ég er voða voða bissí núna að pakka ætla ég að hætta að tjá mig og halda áfram.

:: Jón Grétar 17:10 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?