:: The Materialistic Worldview ::

"Taking something to be so, taking it to be not so or not taking it to be either does not make it so, does not make it not so and does not make it neither" Fred Dretske
:: welcome to The Materialistic Worldview :: bloghome | contact ::
[::..archive..::]
[::..Friends..::]
:: My departmental website [>]
:: Bara [>]
:: Jon Ingvar [>]
:: Tyrone Hobbes [>]
:: Burla [>]
:: Reynir and family [>]
:: Fríður Finna [>]
:: Svavar Knutur [>]
:: Asgeir Olafs [>]
[::..Whiskey..::]
:: Royal Mile Whiskies [>]
:: Ian Macleod Distillery [>]
:: Master of Malt [>]
:: Whisky Heritage Museum [>]
:: Connemara Whiskey [>]
:: Jack Daniels [>]
[::..Fun stuff..::]
:: Maddox Genius no1 [>]
:: Michael Kelly Genius no2 [>]
:: Kissonline [>]
:: Kissasylum [>]
:: Garfield [>]
:: Bitter Films [>]
:: [::..Philosophy and politics..::]
:: Murinn [>]
:: Kreml [>]
:: Arts and letters daily [>]
:: New York Review of Books [>]
:: Noam Chomsky [>]
:: Eric Lormand [>]
[::..Schools and work..::]
:: Galway psychology department [>]
:: Cambridge centre for behavioral studies [>]
:: B.F. Skinner foundation [>]
:: ]

:: 09 febrúar, 2006 ::

Þrátt fyrir að eiga að vera niðursokkinn í greinar, bækur og skrif alla daga get ég samt lesið þegar ég kem heim. Fyrir áramótin las ég mest enskar froðubókmenntir en um jólin tók ég með mér slatta af bókum að heiman, bæði það sem ég fékk í jólagjöf og það sem ég átti fyrir.

Í gær var ég einmitt að klára eina jólagjöfina, bókina um Jörund Hundadagakonung eftir Söru Blackwell (eða Blakewell, man það ekki svo glöggt). Í íslenskum frásögnum er oftast gert hálfgert grín að þessum manni sem gerði valdaránstilraun á Íslandi í júní 1809. Satt er að hann virðist hafa verið draumóramaður, ögn blautur og einnig gefinn fyrir peningaspil. Hins vegar virðist hann hafa verið góður maður, hraustur og viljað íslendingum einungis hið besta.

Hann var dani en ekki breti eins og margir halda, hafði ýmugst á dönum (eins og margir góðir menn), taldi breta og breska heimsveldið hins vegar vera til fyrirmyndar í flestu fyrir utan kannski að leggja næstum Kaupmannahöfn við jörðu í tilgangslausri árás 1807. Hann þvældist um hnöttin vítt og breytt, prófaði margt og skráði það niður samviskusamlega og það eru þau skrif sem eru notuð til grundvallar bókinni sem ég var að klára.

Ég mæli með því að þið fáið ykkur þessa bók, annað hvort á bókasafninu eða kaupið hana. Ef þið nenni ekki að lesa heila bók, kíkið á
http://is.wikipedia.org/wiki/Jörundur_hundadagakonungur
þar sem er að finna ágætis samantekt um ævi hans. Þarna finnst mér samt vera full mikil áhersla lögð á að hann hafi verið spilafíkill, drykkjusjúklingur og fangi. Hann var það vissulega, en ævisagan dregur fram af hverju hann var fangi og ólíkt öðrum föngum hafði hann mikla ábyrgðartilfinningu og gekk fram oft sem hetja þegar hann kannaði óbyggðir Tazmaníu, sigldi um Atlantshafið og tók þátt í styrjöldinni við Breta.

:: Jón Grétar 17:37 [+] ::
...
:: 07 febrúar, 2006 ::
Sussubía, það er næstum mánuður síðan ég skrifaði síðast og nóg hefur nú gerst á þessum mánuði! Ég fór heim um jólin, gerði fullt af skemmtilegum hlutum (gönguferðir, hellaferðir, ættingjaheimsóknir og náttúrulega jólin). Ætla nú að sleppa því að skrifa um allt þetta. Kíkið á heimasíðuna hans Þóris til að sjá magnaða ferðasögu af hellaferðinni, hvernig við Gaui villtumst í hellinum og Ásgeir bróðir datt næstum ofan í hellisopið... Æsispennandi!!

Ég er allavega kominn heim til Írlands og kominn í nýja íbúð, rosalega flotta. Kannski ekkert ROSALEGA flotta en að minnsta kosti betri en staðurinn sem ég var á síðast. Þið getið kíkt á myndir af henni á síðunni hennar Báru. Bára kíkti til mín um daginn og var hjá mér í heila viku þannig að við gátum gert fullt af hlutum saman. Mike félagi minn lánaði okkur bílinn sinn þannig að við gátum farið í bíltúr um sveitir Írlands. Alveg magnað fyrirbæri að keyra réttum megin á götunni í þessu afdankaða landi en það vandist fljótt. Bára kemur aftur um páskana og ég fer til hennar í mars. Rosalegt.

Skráningin mín er loksins komin í gegn þannig að ég fer að verða venjulegur stúdent hérna loksins! Búið að vera mikið vesen á leiðbeinendanum mínum henni Geraldine og hún er ekki alveg að standa sig í skriffinnskunni en ég vona að það fari nú að batna eftir að hlutirnir falla í eðlilegan farveg.

:: Jón Grétar 14:34 [+] ::
...

This page is powered by Blogger. Isn't yours?